Innlent

Dæmdur fyrir þjófnað

Karlmaður var í dag dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness.

Hann var fundinn sekur um tvö innbrot. Í bæði skiptin fór hann inn um glugga og hafði margs konar raftæki á brott með sér. Auk þess var hann tvisvar sinnum tekinn með fíkniefni.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust og var dæmdur til greiðslu skaðabóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×