Innlent

Húsleit hjá Ölgerðinni og Vífilfelli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins fóru á skrifstofur Ölgerðarinnar í morgun og framvísuðu heimild til þess að leggja hald á gögn hjá fyrirtækinu. Samkvæmt frétt á vef Ölgerðarinnar tók heimsókn eftirlitsins skamman tíma og ekkert var látið uppi um ástæður hennar. Stjórnendur Ölgerðarinnar hafa því engar upplýsingar um það, að hverju rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist. Samkvæmt upplýsingum frá Vífilfelli var einnig gerð húsleit þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×