Innlent

Vilja að Goðafoss sigli í dagsbirtu

Goðafoss á slysstað.
Goðafoss á slysstað.
Sigling flutningaskipsins Goðafoss var stöðvuð að boði dönsku strandgæslunnar í gærkvöldi, og vörpuðu skipverjar akkerum fyrir utan bæinn Grenaa á Jótlandi.

Engar augljósar skýringar eru á þessu boði dönsku strandgæslunnar, en talið er að hún vilji fylgjast með siglingu skipsins í dagsbirtu.

Goðafoss er á leið til Óðinsvé á Fjóni, þar sem gert verður við það eftir að það strandaði við Noregsstrendur nýverið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×