Innlent

Um sex þúsund manns á Siglufirði

Fjölmörgir gestir eru á Síldarævintýri á Siglufirði.
Fjölmörgir gestir eru á Síldarævintýri á Siglufirði. mynd/www.siglo.is
Um sex þúsund manns eru samankomnir á Síldarævintýri á Siglufirði og gekk nóttin stórslysalaust. Guðmundur Skarphéðinsson framkvæmdastjóri Síldarævintýrisins er ánægður með hátíðina. „Hátíðin hefur gengið mjög vel,“ segir Guðmundur. „Það er mikið af fólki í bænum sem skemmti sér fram eftir í nóttu.“

Þessa stundina er um 350 manna skemmtiferðaskip á Siglufirði og bætast þeir gestir við þá 6000 sem áætlað er að hafi verið saman komnir í bænum í gærkvöldi. Guðmundur segir nóg um að vera. „Dagskráin er þétt og byrjar upp úr hádegi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×