Innlent

Nefbrutu lögreglumann

Lögreglumaðurinn var fluttur á slysadeild en þar kom í ljós að hann var nefbrotinn.
Lögreglumaðurinn var fluttur á slysadeild en þar kom í ljós að hann var nefbrotinn. Mynd/Stefán Karlsson
Tveir menn réðust á lögreglumann undir morgun í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann var við skyldustörf. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist vera nefbrotinn. Lögreglumaðurinn hafði reynt að stöðva mennina þegar þeir voru að sparka í liggjandi mann. Þeir brugðust hins vegar illa við og réðust þá á hann.

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og gistu átta fangageymslur. Talsvert var um slagsmál og pústra í miðbænum. Þá eru tveir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×