Innlent

Hælisleitandi í haldi lögreglu

Maðurinn segist vera frá Palestínu en er í haldi vegna falsaðra skilríkja.
Maðurinn segist vera frá Palestínu en er í haldi vegna falsaðra skilríkja. Mynd/GVA
Erlendur maður á þrítugsaldri var handtekinn á Seyðisfirði í gær. Maðurinn var að koma með Norrænu frá Danmörku og var tekinn höndum þegar í ljós kom að skilríki hans voru fölsuð. Hann segist vera frá Palestínu hefur óskað eftir hæli.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Seyðisfirði ber maðurinn sig nokkuð vel. Hann verður fluttur suður til Reykjavíkur við fyrsta tækifæri þar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Útlendingastofnun taka við hælisumsókn hans.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×