Innlent

Grasagarðurinn skemmdur

Skemmdir voru unnar á Grasagarði Vestfjarða í Bolungarvík um síðustu helgi. Grjót í kringum beð og læk var fjarlægt og svo hent út í tjörnina í garðinum.  „Þykir þetta miður því mikil vinna hefur verið lögð í garðinn til að gera hann sem fallegastan,“ segir á vef Náttúrustofu Vesturlands. Má fólk sem hefur einhverjar upplýsingar um skemmdarverkin hafa samband við Náttúrustofuna. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×