Innlent

Gallaðir Hummer-bílar

Hummer H3 frá 2006
Hummer H3 frá 2006 Mynd úr safni
Neytendastofa vekur athygli á innköllun Hummer H3 bifreiða frá  General Motors.

Um er að ræða bifreiðar framleiddar á árunum milli 2006 og 2010, módel e13*2001/116*0209*00, týpu GM345.

Ástæða innköllunarinnar er sú að öryggiskrækja sem heldur húddinu niðri getur brotnað, eða í hana komið sprunga, sem getur valdið því að hún losni á meðan bifreið er á ferð.

Engin umboðsaðili er fyrir Hummer bifreiðar hér á landi en Neytendastofa bendir eigendum á að snúa sér til bifreiðaverkstæða til að láta laga krækjuna til að tryggja að hún losni ekki.

Sjá tilkynningu frá Rapex






Fleiri fréttir

Sjá meira


×