Innlent

Hjólaleiðsögn um Viðey

Hjólaleiðin hentar öllum
Hjólaleiðin hentar öllum Mynd úr safni
Þriðjudagsgangan í Viðey er í dag farin með Íslenska fjallahjólaklúbbnum. Þarna er um að ræða árvissa hjólaferð Fjallahjólaklúbbsins til Viðeyjar.

Hjólað verður um eyna og sagan skoðuð, hús og minjar. Hjólaleiðin er hvorki löng eða strembin og því geta allir notið ferðarinnar - hjólagarpar og byrjendur.

Leiðsögnin er ókeypis og öllum heimil.

Leiðsögnin hefst við Viðeyjarstofu klukkan 19.30 og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.

Siglt er frá Skarfabakka klukkan 18.15 og 19.15, og aftur til baka klukkan 22.00. Gjald í ferjuna fer eftir hefðbundinni gjaldskrá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×