Innlent

Slys á torfæruhjóli og vélsleða

Lögreglan á Selfossi hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga.
Lögreglan á Selfossi hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga.
Lögregla á Selfossi hefur verið kölluð til vegna níu slysa á undanförnum dögum. Maður steyptist af torfæruhjóli við Nesjavelli á föstudagskvöld. Við skoðun kom í ljós að brotnað hafði úr hryggjarlið.

Þá varð slys á Langjökli þegar erlendur ferðamaður féll af vélsleða sem hann var farþegi á. Talið er að hann hafi handleggsbrotnað. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×