Bílar

Peugeot Loeb 4,8 sek. í 200

Finnur Thorlacius skrifar
Bíllinn er 875 hestöfl og með risastórar vindskeiðar.

Margfaldi heimsmeistarinn í rallakstri, Sebastian Loeb, verður ekki lengi upp Pikes Peak fjallið í samnefndri klifurkeppni í sumar ef marka má getutölur bílsins sem hann verður á. Peugoet bíll hans er 875 hestöfl sem koma úr 3,2 lítra V6 vél með tveimur forþjöppum. Hann er aðeins 1,8 sekúndu í 100, 4,8 sekúndur í 200 og 7 sekúndur í 240 kílómetra hraða.

Þetta ætti að duga honum til sigurs með alla sína ökuhæfni í handraðanum, svo fremi sem hann láti ekki allt aflið hlaupa með sig í gönur og endi utanvegar. Bíll Loeb keppir í flokki þar sem allt er leyfilegt í breytingu bílanna. Þar verður keppnin sannarlega hörð og margir búnir að boða koma sína með brjálæðislega bíla.

Mikið er lagt í bíl Loeb





×