Lífið

Sýna verk Helenu í Ósló

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Helena Jónsdóttir, danshöfundur.
Helena Jónsdóttir, danshöfundur.
Á laugardaginn mun Íslenski dansflokkurinn sýna verkið Tíma eftir Helenu Jónsdóttur í Óperuhúsinu í Ósló á hátíðinni Ice Hot, sem haldin er annað hvert ár sem vettvangur fyrir norræna dansflokka til að kynna sig og starf sitt. Hafa miðar á sýninguna þegar selst upp.

Íslenski dansflokkurinn sló í gegn núna í nóvember með sýningunni EMOTIONAL, sem sýnd var fyrir troðfullu húsi öll kvöldin og hlaut góðar viðtökur.

Tímar var samið sérstaklega fyrir 40 ára afmæli Íslenska dansflokksins í fyrra en á síðu dansflokksins segir að verkið sé byggt á stefnumóti eldri og yngri kynslóða úr sögu íslenskrar danslistar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×