Íslenski boltinn

Tveir fimmtán ára strákar í leikmannahópi FH í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Daníel
Topplið FH í Pepsi-deild karla í fótbolta heimsækir Keflvíkinga í 5. umferðinni í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport en þessi stórleikur umferðarinnar er einnig í beinni textalýsingu hér inn á Vísi.

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er með hetju síðasta leiks, Atla Viðar Björnsson, áfram á bekknum hjá sér en þar eru líka tveir kornungir leikmenn.

Tveir fimmtán ára strákar, báðir fæddir haustið 1998, eru í leikmannahópi FH-liðsins í kvöld en það eru þeir Hörður Ingi Gunnarsson og Viktor Helgi Benediktsson.

Hörður Ingi verður sextán ára 14. ágúst en Viktor Helgi ekki fyrr en 15. september. Þeir eru báðir ennþá í 3. flokki.

Á varamannabekk FH-liðsins er einnig Kristján Finnbogi Finnbogason sem er nýorðinn 43 ára gamall. Það er því meira en 27 ára aldursmunir á elsta og yngsta leikmanni FH í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×