Lífið

„Það fer einhver kjánahrollur í gegnum mig þegar að ég hlusta á sjálfa mig tala“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fegurðardrottningin Tanja Ýr keppir fyrir Íslands hönd í fegurðarsamkeppninni Miss World.

Hún birtir kynningarmyndband um sig fyrir keppnina á heimasíðunni sinni. Hún segir að það hafa verið erfitt að taka upp myndbandið, sérstaklega þar sem hún þurfti að tala á ensku.

„Að læra að tala fyrir framan myndavél er hægara sagt en gert og hvað þá á ensku. Þetta var mjög lærdómsríkt og líka rosalega skemmtilegt. Það erfiðasta við þetta er að hlusta á sig eftirá, sýna eigin rödd! Það fer einhver kjánahrollur í gegnum mig þegar að ég hlusta á sjálfa mig tala, en ég er farin að sætta mig við íslensku enskuna mína og langaði að deila þessu með ykkur. VARÚÐ haha…,“ skrifar Tanja.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×