Lífið

Fjölhæfur leikari fallinn frá

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hvíl í friði Eddie.
Hvíl í friði Eddie. vísir/getty
Leikarinn Eddie Rouse er látinn, sextugur að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Los Angeles á sunnudag úr lifrabilun.

Eddie var þekktur fyrir að vera afar fjölhæfur leikari og lék í myndum á borð við American Gangster, The Number 23 og Pandorum.

Þá vann hann einnig með grínaranum Seth Rogen að myndunum Observe and Report, The Green Hornet og Pineapple Express.

Eddie hafði nóg fyrir stafni síðustu dagana fyrir andlátið og var nýbúinn að taka upp prufuþátt af sjónvarpsþáttunum Westworld sem framleiddir eru af J. J. Abrams.

Leikarinn skilur eftir sig son og dóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×