Lífið

Alltaf með Toblerone og snakk í veskinu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan á tískusýningu Victoria's Secret fyrir stuttu.
Ofurfyrirsætan á tískusýningu Victoria's Secret fyrir stuttu. vísir/getty
Ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio segist vera algjör nammigrís og alltaf ganga með snarl í töskunni. Þetta kemur fram á vef Daily Mail.

„Mér finnst gott að hafa Lay's-snakk með salti og ediki og Toblerone-súkkulaði í Gucci-töskunni minni. Ég er með þetta á heilanum. Og ég deili þessu með börnunum mínum,“ segir fyrirsætan sem á tvö börn, Anja, sex ára, og Noah, tveggja ára, með unnusta sínum, Jamie Mazur.

Alessandra segist líka drekka te til að hjálpa henni að slaka á fyrir stóra tískusýningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×