Lífið

Sárþjáð eftir brjóstaminnkun

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Glamúrfyrirsætan Katie Price fór í brjóstaminnkun á dögunum. Kom það mörgum í opna skjöldu enda er hún þekkt fyrir að vera með stóran barm.

Katie segir í viðtali við tímaritið new! að hún sé sárþjáð eftir aðgerðina.

„Ég er svo aum. Þið getið ekki ímyndað ykkur,“ segir hún.

Katie mætti í myndatöku til að kynna nýja ilminn sinn, Kissable Fierce, stuttu eftir að hún fór í aðgerðina.

„Maður þarf að vera frá vinnu í sex vikur en ég var bara í fríi í sjö daga. En ég fór í myndatöku í gær og í lok vikunnar flýg ég erlendis og geri dagatal. Þetta er aðeins of seint í rassinn gripið fyrir jólin en ég vil ekki blekkja aðdáendur með gömlu brjóstunum mínum.“

Katie notar nú brjóstahaldara númer 32C.

„Brjóstin eru agnarsmá. Þau eru virkilega lítil. Margir segja: Þú lítur vel út en af hverju vildirðu svona lítil?“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×