Lífið

Myndaði sig á öllum stigum meðgöngunnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þegar argentíski ljósmyndarinn Sophie Starzenski varð ólétt ákvað hún að mynda breytingar á likama sínum. Hún tók sjálfsmynd af sér á nærbuxunum einum klæða á nokkurra vikna fresti og myndaseríuna kallar hún 40 Weeks and a Mirror.

Sophie byrjaði að mynda sig þegar hún var gengin fjórar vikur en næstsíðasta myndin í seríunni er tekin fjórum klukkustundum áður en hún fékk hríðir. Í síðustu myndinni fáum við síðan að sjá barnið hennar, Simon.

Sophie ákvað að hylja andlit sitt því myndirnar eru ekki um hana heldur breytingarnar á likamanum.

4. vika.
17. vika.
27. vika.
29. vika.
40. vika.
Með soninn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×