Lífið

Beyoncé og Jay Z skoða hús á tíu milljarða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Beyoncé, Blue Ivy og Jay Z.
Beyoncé, Blue Ivy og Jay Z. vísir/getty
Stjörnuhjónin Beyoncé og Jay Z hafa skoðað hús í Beverly Hills sex sinnum að undanförnu og samkvæmt Youth Health Mag hafa þau augastað á því.

Húsið er búið átta svefnherbergjum og fimmtán baðherbergjum. Ekki skemmir fyrir að bílskýli fylgir með fyrir sextán bíla. Í húsinu er einnig bíósalur sem rúmar 24 og auðvitað fylgir heimilinu sundlaug.

Ásett verð eru 85 milljónir dollara, rétt rúmir tíu milljarðar króna. 

Beyoncé og Jay Z heimsóttu Ísland í síðustu viku en fóru af landi brott um helgina. Þetta er í annað sinn sem þau heimsækja land og þjóð og eiga svo sannarlega skilið nafnbótina Íslandsvinir.


Tengdar fréttir

Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu

Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember.

Beyoncé birtir fallega skýjamynd

Telja aðdáendur söngkonunnar víst að Beyoncé hafi tekið myndina til að heiðra minningu Doris Rowland, móður Kelly Rowland.

Sjáðu Beyoncé og Jay Z við Skógafoss

Vísir getur staðfest að poppstjarnan Beyoncé og eiginmaður hennar Jay Z eru stödd hér á landi. Mynd náðist af þeim ganga úr svartri þyrlu við Skógafoss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×