Lífið

Hlóð símann með hjálp naktrar konu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
mynd/tmz
Fréttasíðan TMZ birtir mynd af tónlistarmanninum Usher á alþjóðlegu listasýningunni Art Basel í Miami. Á myndinni sést Usher hlaða síma sinn með hjálp naktrar konu en hún er með hleðslutækið inni í leggöngunum.

Usher borgaði tuttugu dollara, tæplega 2500 krónur, fyrir tíu mínútna hleðslu á miðvikudagskvöldið og horfðu listunnendur á allt saman. 

Konan sem sá um hleðsluna vildi með athæfinu sína fram á að maðurinn væri orðinn háður tækninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×