Lífið

Gerir grín að Kim og Miley

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ofurfyrirsætan Cara Delevingne setti skemmtilega mynd á Instagram-síðu sína í dag.

Á myndinni er Cara búin að fótósjoppa andlit sitt inn á líkama söngkonunnar Miley Cyrus og sveiflar sér á afturenda Kim Kardashian.

Er Cara að gera grín að myndbandi við lagið Wrecking Ball með Miley Cyrus og Paper-forsíðunni síðustu þar sem raunveruleikastjarnan Kim Kardashian beraði afturenda sinn.

Myndin hefur vakið gríðarlega lukku á Instagram og hafa mörg hundruð þúsund manns líkað við hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×