Lífið

Á lista yfir hundrað undrabörn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Indía Salvör.
Indía Salvör. vísir/getty
Tímaritið Dazed hefur birt sinn árlega lista yfir þau hundrað undrabörn og frumkvöðla sem hafa ómetanleg áhrif á menninguna að mati forsvarsmanna tímaritsins.

Íslenska leik- og listakonan Indía Salvör Menuez nær á listann og er í 76. sæti. Á toppi listans trónir fyrirsætan Kendall Jenner. 

Lesendur geta haft áhrif á listann og kosið sínar eftirlætispersónur. Sérstakur lesendalisti verður síðan kynntur þann 16. desember. Þegar þetta er skrifað er Indía í 24. sæti á meðal lesenda og fellur því greinilega vel í kramið.

Aðrar þekktar persónur á listanum eru tónlistarkonurnar FKA Twigs og Kelela, kvikmyndagerðarkonan Gia Coppola, leikkonan Kiernan Shipka og bloggarinn Tavi Gevinson.

FKA Twigs.vísir/getty
Kendall Jenner.vísir/getty

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×