Lífið

"Ég hef verið edrú í tíu ár“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn Bradley Cooper prýðir forsíðu Vanity Fair en í viðtali við blaðið kynnir hann nýjustu mynd sína American Sniper. 

Hann þurfti að koma sér í form fyrir hlutverkið en notaði engin lyf til þess.

„Ég gerði það náttúrulega því ég hef verið edrú í tíu ár og vildi ekki neyta neinna lyfja. Ég átti í raunsæju samtali við sjálfan mig. Get ég gert þetta á náttúrulegan hátt á þremur mánuðum? Get ég bætt á mig þrettán kílóum af vöðvamassa? Ég vissi ekki hvort ég gæti það. Ég þakka Guði fyrir að líkami minn brást hratt við,“ segir Bradley. Hann segist nánast vera laus við dómhörku.

„Ég sé lífið í gráum tónum er ég eldist. Það var svarthvítt þegar ég var á þrítugsaldrinum. Það var bara til rétt og rangt. Þannig er erfitt að lifa. Það er sjaldgæft að ég dæmi einhvern, mjög sjaldgæft.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×