Lífið

Madonna berar á sér brjóstin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Madonna prýðir forsíðu nýjasta heftis Interview og hefur eintakið vakið óskipta athygli síðustu klukkutímana.

Inni í blaðinu er nefnilega mynd af Madonnu þar sem hún sýnir á sér brjóstin en það voru ljósmyndararnir Mert Alas og Marcus Piggott sem mynduðu söngkonuna.

Í viðtali við blaðið talar hún mjög opinskátt um fíkniefnaneyslu sína.

„Ég meina, ég prófaði allt einu sinni. En um leið og ég komst í vímu drakk ég fullt af vatni til að reyna að ná efnunum úr líkamanum. Um leið og ég komst í vímu fékk ég það á heilann að skola efnunum burt. Ég hugsaði: Ókei, núna er þetta búið.“

Myndin umtalaða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×