Óttaslegin um að barnið hennar dragi ekki andann á morgun Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 15. desember 2014 13:41 Sara Dögg er eins og hálfs árs. mynd/einkasafn „
Við vildum halda þetta kvöld til að foreldrar hennar gætu fengið einhverja aðstoð. Móðir hennar er komin með kvíða og alltaf óttaslegin um að barnið hennar dragi ekki andann á morgun,“ segir Margrét Gunnarsdóttir í hópnum United Reykjavík. Margrét er ein fjögurra aðila sem skipuleggja styrktarlofgjörðarkvöld í kvöld til styrktar fjölskyldu Söru Daggar, sem er eins og hálfs árs. Sara er lítil hetja sem hefur síðasta hálfa árið barist við óþekktan sjúkdóm. Kvöldið byrjar klukkan 20.00 í kvöld og er haldið í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. United-hópurinn er þó ekki tengdur inn í kirkjuna heldur hefur aðeins aðsetur þar og heldur sínar samkomur í kirkjunni á hverju mánudagskvöldi. „Þetta er styrktarkvöld og það kostar ekkert inn. Það eru allir velkomnir að koma og tökum við á móti frjálsum framlögum. Það verður baukur við innganginn og baukur látinn ganga á milli manna,“ segir Margrét. Sjúkrasaga Söru Daggar er rakin á Facebook-síðu fyrir styrktarkvöldið en í júní á þessu ári, þegar Sara Dögg var eins árs, þurfti í fyrsta sinn að hnoða lífi í Söru Dögg. Móðir hennar sá um hjartahnoðið með neyðarlínuna í símanum og þá greindist Sara Dögg með hjartagalla. Hún er með of langt QT-bil í hjarta sem veldur hjartsláttaróreglu og getur valdið skyndidauða.Margrét Gunnarsdóttir.Sara Dögg missir meðvitund í tíma og ótíma og hefur farið í alls konar rannsóknir til að komast að því hvað veldur því. Enn sem komið er hafa foreldrar hennar ekki fengið svör við því af hverju hún missir meðvitund og lifa því í algjörri óvissu. Margrét hefur séð Söru Dögg í þessu ástandi þar sem hún missir meðvitund. „Móðir hennar kom með hana á samkomu fyrir tveimur vikum síðan og þá gerðist þetta fyrir framan okkur öll. Það var mjög óhugnanlegt. Ég er nýbúin að eignast barn sjálf og vissi ekki hvert ég ætlaði,“ segir hún. Margrét og félagar hennar eru búin að safna á styrktarsíðu fyrir Söru Dögg síðasta mánuðinn. „Við erum búin að safna meira en ég átti von á,“ segir Margrét en þeir sem vilja styrkja fjölskyldu Söru Daggar er bent á reikningsnúmerið 552-26-100101 og kennitöluna 0609872629. Markmið Margrétar og vina hennar er að styrkja fjölskylduna eins og þau geta, en foreldrar Söru Daggar eiga einnig aðra stúlku sem er sex ára. „Þau vita ekkert með framhaldið en eru að reyna að fá það í gegn að hún fái læknishjálp erlendis. Móðir hennar er gömul vinkona mín og hún byrjaði að koma á samkomur hjá United því hún var með svo mikinn kvíða. Það hjálpaði henni mikið að koma og sagði hún sjálf að þetta hefði verið eins og einhver hefði tekið fimmtíu kíló af bakinu hennar,“ segir Margrét. United Reykjavík var stofnað árið 2011 og er hópurinn byggður á kristilegum gildum. Allir eru velkomnir á samkomur hópsins, sama hverrar trúar þeir eru. Á hverja samkomu á mánudagskvöldum koma allt frá 150 til 300 manns og er um hjálparstarf að ræða fyrir þá sem til dæmis berjast við kvíða, ótta eða vanmáttarkennd eða þá sem hafa verið í fíkniefna- og áfengisneyslu og vilja snúa við blaðinu.
Mest lesið „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Lífið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Lífið Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Lífið Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Lífið Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Lífið Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Lífið Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Lífið Fleiri fréttir One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Sjá meira