Lífið

Svona var „flash-mobið“ í Krónunni skipulagt

Bjarki Ármannsson skrifar
Forsvarsmenn Krónunnar ákváðu að koma viðskiptavinum sínum á óvart á dögunum og Ísland í dag fékk að fylgjast með.

Um svokallaðan „flash-mob“ gjörning var að ræða, þar sem þátttakendur fela sig í margmenni og stíga svo eitt af öðru fram til að taka þátt. Í þessu tilviki var um að ræða söngvara sem fluttu jólalagið „Nóttin var sú ágæt ein“ óvænt fyrir viðstadda.

Uppátækið heppnaðist vel og vakti talsverða lukku, líkt og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Sjón er sögu ríkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×