Lífið

Rolene Strauss er Ungfrú heimur 2014

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Frá verðlaunaafhendingunni í kvöld.
Frá verðlaunaafhendingunni í kvöld. Vísir/AFP
Hin suður-afríska Rolene Strauss var í kvöld útnefnd Ungfrú Heimur. Hún er 64 konan til að vera útnefnd þessum titli .  Fulltrúi Íslands, Tanja Ýr Ástþórsdóttir, komst ekki í úrslit keppninnar.

Í öðru sæti var Edina Kulcsár, frá Ungverjalandi, og í því þriðja var Elizabeth Safrit, fulltrúi Bandaríkjanna.

Verðlaunaafhending fór fram í London í kvöld en það er sama borg og fyrsta Ungfrú heimur keppnin fór fram, árið 1951. Fulltrúar rúmlega 120 lands öttu kappi um titilinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×