Lífið

Góð stemning á opnun Apotek Hótel

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Mikill fjöldi mætti á opnun Apotek Hótel og Apotek Restaurant í gærkvöldi. Á opnuninni voru herbergi hótelsins sýnd, auk þess sem þjónusta fyrirtækisins var kynnt.

Að sögn viðstaddra var stemningin ljúf og voru gestir ánægðir með matinn sem borinn var á borð. Hafði einn gesturinn á orði við blaðamann að veitingastaðurinn væri frábær viðbót í flóru íslenskra veitingastaða í miðbænum. 

Þorgeir Ólafsson ljósmyndari tók meðfylgjandi myndir og þar má meðal annars sjá herbergin á nýja hótelinu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×