Lífið

Borðar mat úr ruslinu, frystinum og ísskápnum þegar eigandinn er ekki heima

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Útvarpsmaðurinn Adam Montiel tók eftir því að hundurinn hans var farinn að borða ýmislegt tilfallandi í frystinum og ísskápnum en skildi ekki hvernig hann fór að því.

Hann ákvað því að festa myndavél í eldhúsið og mynda það sem hundurinn, tólf ára gamla Labrador-tíkin Allie, gerði þegar Adam var ekki heima.

Adam er búinn að setja myndbandið á YouTube en á því sést hve ráðagóð Allie er þegar kemur að því að finna sér mat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×