Lífið

Vegabréfsmynd kanadísks pilts vekur athygli

Atli Ísleifsson skrifar
Nathaniel Regehr mun notast við þessa vegabréfsmynd næstu árin.
Nathaniel Regehr mun notast við þessa vegabréfsmynd næstu árin. Mynd/Scott Regehr
Kanadískur faðir hefur birt mynd af nýju vegabréfi sonar síns þar sem sjá má hvernig hluti textans á peysu piltsins hefur verið klipptur þannig að standi „FAT“, eða „feitur“.

Twitter-færsla föðurins hefur vakið mikla athygli, en þar segir hann að sonurinn hafi við myndatökuna klæðst peysu með textanum „Eat, Sleep and be Merry“, eða „Borðaðu, sofðu og vertu glaður“.

Starfsmanni sýslumanns hafi hins vegar ekki tekist betur til en svo að efsta orðið „eat“ birtist þannig að það virtist standa „fat“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×