Lífið

Bestu staðirnir til að stunda kynlíf án þess að fara uppí rúm

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kynlíf á gólfinu er á listanum.
Kynlíf á gólfinu er á listanum. vísir/getty
Tímaritið Cosmpolitan birtir lista yfir tíu staði sem er frábært að stunda kynlíf á ef maður vill ekki stunda það uppí rúmi. Hér fyrir neðan er listinn sem ætti vonandi að nýtast einhverjum.

1. Á gólfinu

„Þetta er eiginlega jóga. Sexí jóga sem er gott fyrir líkamsstöðuna.“

2. Ofan á þvottavél

„Þið vitið að það er sagt að þið fáið fullnægingu ef þið sitjið ofan á þvottavél á meðan hún þurrkar þvottinn? Ímyndið ykkur nú hvernig það væri að stunda kynlíf á meðan þvotturinn er þurrkaður.“

3. Á eldhúsborðinu

„Sko, þetta borð er búið til fyrir sóðaskap. Þannig að maður getur gert hvað sem er á því. Og bjóðið síðan gestum í heimsókn og flissip því þið nutuð ásta þar sem þeir eru að borða salatið sitt.“

4. Í hægindastól

„Það er hægt að stunda kynlíf á milljónir vegu með hjálp eins stóls. Töfrar!“

5. Á sófanum

„Þetta er eins og að stunda kynlíf í rúminu en aðeins dónalegra.“

6. Á sófaborðinu

„Passið ykkur bara að það sé ekki glerplata ofan á því. Þú vilt ekki útskýra það á bráðamóttökunni.“

7. Á bókasafni

„Spennan er að hafa eins hljótt og mögulegt er á meðan þið fáið raðfullnægingu.“

8. Í skóginum

„Kveikið varðeld ef þið viljið meiri hita í leikinn.“

9. Á hótelherbergi með dregið aðeins frá

„Þú ert ekki haldin/n sýningarþörf en vilt smá spennu? Hér er hin fullkomna lausn.

10. Í tjaldi inni í stofu

„Grípið tvöfaldan svefnpoka og sykurpúða með og farið niður á hvort annað.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×