Lífið

Slash ruglaðist á Birgi í Dimmu og Psy

Bjarki Ármannsson skrifar
Dæmi hver fyrir sig.
Dæmi hver fyrir sig. Vísir/Ernir/Getty
Birgir Jónsson, trommari þungarokkssveitarinnar Dimmu, greinir frá skemmtilegu atviki á Facebook-síðu sinni í dag sem á að hafa átt sér stað baksviðs á tónleikum Myles Kennedy and the Conspirators. Þar hitaði Dimma upp fyrir gítargoðsögnina Slash og félaga í Conspirators, en Slash á að hafa ruglast á Birgi og öðrum þekktum einstakling.

„Það sem er fyndið við þetta er að það hefur verið grínast um þetta frá því að ég var yngri, að ég sé pínu asískur í útliti,“ segir Birgir í samtali við Vísi. „Þetta hefur verið djók í mínum vinahópi. Ég var kallaður Biggi Bruce Lee í Kópavoginum og svona.“

Birgir, sem einnig er aðstoðarforstjóri Wow air, lýsir því færslu sinni að hann hafi verið ansi uppi með sér þegar Slash gekk upp að honum og kvaðst reglulega horfa á myndbönd hans á Youtube með börnum sínum. Enda Birgir duglegur að setja þangað inn myndbönd af sér að tromma. Það runnu þó á okkar mann tvær grímur þegar Slash fór að segja frá síðustu heimsókn sinni til Seoul, „heimabæjar“ Birgis.

Kom þá í ljós að gítarhetjan fræga hafði talið Birgi vera suður-kóresku poppstjörnuna Psy, sem þekktastur er fyrir smellinn Gangnam Style, þótt nokkuð ótrúlegt megi virðast.

„Þetta var eldsnöggt og kannski aðeins fært í stílinn í færslunni,“ útskýrir Birgir. „Svo veit maður ekki hvort hann var að grínast. Hann er bara þarna með speglagleraugun og pípuhattinn og maður er bara stífur að tala við Slash.“

Hvort sem goðsögnin var að grínast eður ei, kveðst Birgir hæstánægður með að hitta Slash og hljómsveitina.

„Þetta var rosa gott partí,“ segir hann. „Þetta var líka síðasta kvöldið á túrnum þeirra þannig að það var smá galsi í þeim.“

Facebook-færslu Birgis má lesa hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×