Lífið

Elton John datt úr stóli sínum - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Elton John.
Elton John. Vísir/AFP
Elton John féll aftur fyrir sig þegar hann settist niður þar sem hann var að fylgjast með Statoil Masters mótinu í Tennis í Royal Albert Hall í London. Söngvarinn sem er 67 ára gamall uppskar lófaklapp áhorfenda þegar hann stóð upp.

Það að detta er kannski ekki út af fyrir sig vandræðalegt, en það sem er aftur á móti vandræðalegt er viðtalið sem tekið er við hann þegar Elton John stendur upp. Fréttakona spyr hann út í mótið og segir honum svo að passa sig að setjast almennilega niður í þetta skiptið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×