Lífið

Gamlársdagur verið ágætur afmælisdagur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er sextug í dag.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er sextug í dag. vísir/stefán
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, umdæmisstjóri UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, fyrrverandi utanríkisráðherra, borgarstjóri og formaður Samfylkingarinnar, er sextug í dag, gamlársdag.

„Ég geri ráð fyrir að verja deginum í faðmi fjölskyldu og vina sem ég hef, marga hverja, ekki séð í lengri tíma,“ segir Ingibjörg Sólrún. Undanfarin sex ár hefur hún verið með annan fótinn erlendis og báða frá árinu 2011. Þá tók hún við stöðu yfirmanns jafnréttisstofnunar UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Á haustmánuðum í fyrra færði hún sig síðan um set og tók við stöðu umdæmisstjóra UN Women í Evrópu og Mið-Asíu. Aðsetur hennar er nú í Istanbúl í Tyrklandi.

„Þetta er mjög áhugavert og spennandi starf. Ég hef tekið þátt í uppbyggingu svæðisskrifstofunnar og starfsins frá grunni sem er mjög gefandi. Borgin sjálf er jafnframt mjög heillandi og með mikla sögu.“

Ingibjörg Sólrún fæddist á gamlársdag árið 1954. Aðspurð hvort það sé ekki örlítið undarlegt að eiga afmæli á þeim degi hlær hún örlítið og segir að þeirri spurningu sé erfitt að svara þar eð hún hafi engan samanburð. Henni hafi ávallt þótt það ágætt að eiga afmæli á þessum degi. Það séu alltaf allir tilbúnir til að fagna með henni og svo sé frídagur daginn eftir.

„Eftirminnilegasta gamlárskvöldið var á fertugsafmælinu mínu árið 1994. Það ár hafði verið mjög sérstakt og viðburðaríkt í mínu lífi. Ég hafði sest í stól borgarstjóra og afmælisdagurinn varð nokkurs konar lokahnykkur á ótrúlega góðu ári,“ segir Ingibjörg.

Ingibjörg kom hingað til lands skömmu fyrir jól og hélt þau hátíðleg. Hún hverfur aftur út til starfa sinna áður en vika er liðin af nýja árinu. Dvölin hér á landi hafi verið ánægjuleg og það hafi verið gott að komast í snjóinn, kuldann og íslenska vetrarveðrið í smástund.

Líkt og áður segir mun Ingibjörg Sólrún verja deginum í faðmi fjölskyldu og vina. Milli klukkan 14 og 16 tekur hún á móti þeim, og öðrum velunnurum, í Ráðhúsi Reykjavíkur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×