Lífið

Dorrit líkar ekki alltaf búsetan á Bessastöðum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Forsetahjónin.
Forsetahjónin. vísir/anton brink
„Ég er alin upp inni í þessu fyrirtæki, það er ástríða mín og það sem mér var ætlað að taka mér fyrir hendur. En eitt þarf ekki að útiloka annað. Hér er ekki mitt eigið heimili og mér líkar stundum ekki of vel að búa hér,“ segir Dorrit Moussaieff forsetafrú í nýjasta tölublaði MAN. Dorrit hyggst flytja til Lundúna og starfa þar við fjölskylduviðskiptin.

„Marga daga ársins eru mörg hundruð, jafnvel eitt til tvö þúsund túristar hér á svæðinu og í kringum húsin og kíkja stundum á gluggana. En aðalvandinn er aftur á móti sá að ég finn hversu lítið ég get gert, jafnvel fyrir Ísland, á Íslandi.

Dorrit prýðir jólablað MAN.
Töluverða athygli vakti þegar forsetafrúin flutti lögheimili sitt til Lundúna og um tíma fengust engar skýringar á því. Dorrit sendi þó frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir að hún hafi þurft að flytja lögheimili sitt til Bretlands til að tryggja áframhaldandi rekstur fjölskyldufyrirtækisins. Ýmsar vangaveltur voru uppi varðandi flutningana en sögur af meintum skilnaði Ólafs Ragnars forseta og Dorritar voru þar á meðal. Hún blæs þó alfarið á þær sögusagnir.

„Hvaðan koma þessar sögusagnir? Þetta er hrein vitleysa. En þessi kjaftagangur truflar mig svo sem ekki enda hef ég alltaf heyrt sögur um sjálfa mig stundum væri gaman ef þær væru sannar,“ segir Dorrit en bætir við að sögurnar geti verið spennandi.

„Eins og sú sem ég heyrði nýverið um að ég eigi enskan bankamann að elskhuga, ég er bara upp með mér enda er ég orðin 64 ára gömul.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×