Lífið

Fékk ástarráð frá Lopez

Jennifer Lopez kom Trainor til aðstoðar á AMA-hátíðinni.
Jennifer Lopez kom Trainor til aðstoðar á AMA-hátíðinni. Vísir/Getty
Meghan Trainor segir að Jennifer Lopez hafi gefið henni góð ráð í ástamálunum á American Music Awards í síðasta mánuði.

„Ég hitti Jennifer Lopez á AMA-hátíðinni og hún var ótrúlega svöl. Hún var frábær, alveg eins og ég vonaðist eftir,“ sagði söngkonan. „Ég sagði við hana: „Hvernig færðu menn til að tala við þig og daðra við þig?“ Vegna þess að ég er listmaður núna þá á ég í vandræðum með þetta." 

"Hún sagði: „Vertu mjög vandlát og vertu meðvituð um hvers virði þú ert. Að þú ert æðisleg og að þú þurfir að setja þér háleitt markmið“,“ sagði Trainor og var mjög sátt við hin góðu ráð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×