Lífið

Vill eignast sautján börn

Adam Levine vill eignast helling af börnum með eiginkonu sinni Behati Prinsloo.
Adam Levine vill eignast helling af börnum með eiginkonu sinni Behati Prinsloo.
Adam Levine, söngvari Maroon 5, vill eignast sautján börn með eiginkonu sinni Behati Prinsloo.

Hann vill eignast stóra fjölskyldu með Prinsloo, fyrirsætu hjá Victoria"s Secret, en gerir sér grein fyrir að það verði ekki á næstunni.

„Ég vil örugglega sautján. Er það ekki temmilegt? Ég elska börn og hef gaman af krökkum sem koma á tökustað,“ sagði hann en Levine er dómari í sjónvarpsþættinum The Voice.

Hann bætti við í samtali við E! News að barneignir væru fyrirhugaðar í framtíðinni en vissi ekki hvenær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×