Lífið

Rod Stewart fingurbrotnaði

Rod Stewart og Penny Lancaster. Söngvarinn vinsæli var heppinn að sleppa með fingurbrot í bílslysinu.
Rod Stewart og Penny Lancaster. Söngvarinn vinsæli var heppinn að sleppa með fingurbrot í bílslysinu. Vísir/Getty
Rod Stewart fingurbrotnaði í bílslysi á dögunum. Eiginkonan hans Penny Lancaster segir að söngvarinn hafi verið heppinn að sleppa svona vel úr slysinu.

„Bíll var á öfugum vegarhelmingi þannig að það varð mikill árekstur,“ sagði Lancaster.

Fingurinn var svartur og blár á litinn eftir áreksturinn og brá Stewart á það ráð að mála hann silfurlitaðan fyrir gala-kvöld sem var haldið í Los Angeles um miðjan október, tveimur vikum eftir slysið.

Lancaster og Stewart eiga tvö börn, hinn níu ára Alistair og hinn þriggja ára Aiden.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×