Lífið

Giftu sig fyrr á árinu í laumi

Samkvæmt New York Post giftu þau sig fyrr á árinu.
Samkvæmt New York Post giftu þau sig fyrr á árinu. Vísir/Getty
Leikkonan Scarlett Johansson giftist Romain Dauriac við leynilega athöfn fyrr á þessu ári.

Lost in Translation-stjarnan giftist franska blaðamanninum skömmu eftir að hún eignaðist dóttur þeirra, Rose, í september. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildarmanni sínum.

„Scarlett og Romain giftust í mjög látlausri athöfn eftir að dóttir þeirra fæddist. Þau héldu brúðkaupinu leyndu vegna þess að þau vildu bæði vera í næði,“ sagði heimildarmaðurinn.

Johanson og Dauriac byrjuðu saman árið 2012 og trúlofuðu sig í ágúst í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×