Lífið

Birtu óvart minningargrein

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Kirk Douglas
Kirk Douglas Vísir/Getty
Tímaritið People gerði heldur betur mistök um helgina, þegar þeir birtu óvart minningargrein um stórleikarann Krik Douglas á heimasíðu sinni. Leikarinn er hinsvegar langt frá því að vera kominn yfir móðuna miklu, en hann er þó orðinn fjörgamall og fagnar 98 ára afmæli sínu í næstu viku þann 9.desember.

Minningargreinin, sem var dagsett 29.september,var fjarlægð af síðunni, en henni hafði verið dreift á helstu samfélagsmiðlum yfir helgina. Algengt er að stórir fjölmiðlar séu búnir að skrifa minningargreinar um þekkta einstaklinga fyrirfram svo hægt sé að birta þær strax eftir andlát.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×