Lífið

Taka lagið og gera tilraunir

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Ævar Þór er einn fimm barnabókahöfunda sem verða í Smáralind á laugardag.
Ævar Þór er einn fimm barnabókahöfunda sem verða í Smáralind á laugardag. Vísir/Valli
Fimm vinsælir barnabókahöfundar taka höndum saman á laugardag og blása til allsherjar barnabókaveislu í Smáralind.

Á svæðinu verður Ævar Þór Benediktsson en bók hans Þín eigin þjóðsaga er væntanleg úr þriðju prentun í næstu viku.

Ævari til halds og trausts verða Vilhelm Anton Jónsson, Guðni Líndal, Gunnar Helgason og Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi.

Höfundarnir verða væntanlega í miklu stuði og lesa úr bókum sínum, taka lagið, gera tilraunir og taka lagið saman.

Veislan hefst klukkan tvö í verslun Hagkaups.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×