Lífið

Fataskápurinn: Eva Katrín Baldursdóttir

Eva Katrín Baldursdóttir
Eva Katrín Baldursdóttir
„Fatastíllinn minn er nútímalegur, kvenlegur og djarfur á sama tíma. Ég elska að leika mér með liti og mynstur og ég pæli mikið í litasamsetningum. Mér finnst ekkert skemmtilegra en að reyna svolítið á litrófið og setja saman furðulegar samsetningar sem virka. Svo hendi ég mér í einn góðan biker-leðurjakka og motorboots við.“

Motorboots frá Dr. Martens. Ég elska þessa skó, þetta eru hinir fullkomnu motorboots. Ég fékk þá í jólagjöf frá kærastanum mínum í fyrra og held mikið upp á þá.

Woodwood-húfa og leðurhanskar frá Filippa K. Ég fer ekki út úr húsi án þess að hafa þetta tvennt með mér.

Stella McCartney-taska úr GK Reykjavík. Þessi taska er algjört uppáhald. Ég veit ég á eftir að eiga hana alltaf

Acne Studios biker-leðurjakki sem ég keypti í Los Angeles í sumar. Ég held mikið upp á Acne og hvað þeir eru duglegir að finna upp óvenjuleg en nútímaleg snið.

Stella McCartney-kjóll úr GK Reykjavík. Þetta er ábyggilega uppáhaldskjóllinn minn. Ég dýrka sniðið og litina í honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×