Lífið

Þúsundir radda hljóta hljómgrunn

Þórður Ingi Jónsson skrifar
KK og Ellen tróðu upp í maraþoninu árið 2012.
KK og Ellen tróðu upp í maraþoninu árið 2012.
„Þó ef til vill megi kæfa niður eina rödd sem krefst réttlætis er ljóst að þúsundir slíkra radda hljóta hljómgrunn,“ sagði framkvæmdastjóri Amnesty International, Salil Shetty, eitt sinn og á það vel við í dag þegar bréfamaraþon Amnesty International fer fram.

Undanfarin ár í kringum 10. desember, sem er alþjóðlegur mannréttindadagur, hefur Amnesty International staðið fyrir þessu bréfamaraþoni. Þá koma hundruð þúsunda saman víða um heim og skrifa bréf til stjórnvalda sem brjóta gróflega á mannréttindum fólks í eigin landi. Þá hafa þolendur mannréttindabrota einnig fengið sendar stuðningskveðjur sem eru ekki síður mikilvægar því þær veita þolendum brotanna von og vissu.

Bréfin bera svo sannarlega árangur. Til dæmis var Yorm Bopha dæmd í þriggja ára fangelsi í Kambódíu eftir að hafa mótmælt nauðungarflutningum á fólki í samfélagi hennar. Yorm var sleppt úr fangelsi í nóvember 2013 eftir að yfirvöld höfðu fengið 253.000 áskoranir frá stuðningsmönnum Amnesty í 54 löndum um að láta hana lausa. Mál hennar var tekið fyrir á bréfamaraþoni samtakanna.

Bréfamaraþonið mun fara fram í dag frá klukkan 13:00 til 18:00 á skrifstofu samtakanna að Þingholtsstræti 27, þriðju hæð. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí og Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Svavar Knútur sjá um tónlist. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×