Lífið

Á hamstur, hænur og kisur en humarinn dó

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Kisurnar voru einhvers staðar úti að viðra sig en hamsturinn, sem heitir Scruffy Coca Cola, var heima þegar ljósmyndarinn kom að mynda Emil.
Kisurnar voru einhvers staðar úti að viðra sig en hamsturinn, sem heitir Scruffy Coca Cola, var heima þegar ljósmyndarinn kom að mynda Emil. Vísir/Ernir
Emil Adrian Devaney er nemandi í Vesturbæjarskóla og finnst íþróttatímarnir skemmtilegastir. En skyldi hann æfa einhverjar greinar þar fyrir utan?

„Já, ég æfi jiujitsu í Mjölni. Ég keppti nýverið á Íslandsmóti og lenti í öðru sæti í mínum flokki.“

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í frístundum? „Leika við vini mína og leika í leikritum, auglýsingum og kvikmyndum.“

Áttu einhver uppáhaldsdýr? „Já, flóðhestar eru í uppáhaldi. Ég á tvær kisur og hamstur og hænur sem eru í fóstri.“

Er eitthvað vit í að vera með húsdýr í miðborginni? „Já, endilega og ég mæli með því.

Reyndar voru smá vandræði með hænurnar. Við fengum tvær en önnur þeirra reyndist vera hani. Við héldum að hann væri hæna en svo galaði hann svo mikið að nágrannarnir kvörtuðu. Einn hringdi í borgarstjórann og það þurfti að fara með hanagreyið í burtu. Við fengum hænu í staðinn.

Svo átti ég humar. Kisurnar mínar myrtu hann. Ég og mamma bjuggumst við að það myndi gerast, þær voru alltaf að hringsóla í kringum búrið. Það kom mér samt svolítið á óvart.“

Hvað gerðir þú eftirminnilegt í sumar? „Mér fannst best að vera mikið úti að leika við vini mína og skemmta mér.“

Hefurðu lent í einhverjum ævintýrum sem þú getur sagt okkur frá? „Ég klifraði einu sinni upp á fjall með frændum mínum sem eru eldri en ég. Einn strákurinn lenti í hættu, féll en náði að grípa í grein í fallinu. Ef hann hefði ekki gert það þá hefði hann örugglega dáið.“

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Leikari eða leikstjóri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×