Lífið

Sex manna fjölskylda óvænt í auglýsingu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Gunnar segir vel hafa tekist til við það að festa daglegt líf fjölskyldunnar á filmu.
Gunnar segir vel hafa tekist til við það að festa daglegt líf fjölskyldunnar á filmu. Vísir/stefán
Gunnar Svanberg ljósmyndari og fjölskylda hans voru óvænt fengin til þess að leika aðalhlutverk í auglýsingu fyrir Símann.

„Ég fór til Elite að leita að módelum og fékk símhringingu daginn eftir og var beðinn um að koma á fund. Á fundinum voru allir svo sposkir á svipinn að ég hélt að við værum að fara að mynda einhver svakaleg „celebrities“ en datt ekki í hug að ég væri að fara á fund um verkefni sem sneri eitthvað að okkur,“ segir Gunnar.

Hann og kona hans, Ingunn Dögg Sindradóttir, eiga fjögur börn, Sindra, Sölku Dögg, Kormák Breka og Kolku Kristbjörgu.

„Þeir voru með okkur í fjóra daga og reyndu að elta líf fjölskyldunnar. Það vantar auðvitað alltaf eitthvað inn í þetta, tómstundir hjá krökkunum og svona. En þetta nokkurn veginn nær yfir eðlilega rútínu,“ segir hann en börnin létu veru fjölmenns liðs tökumanna á heimilinu lítið á sig fá.

„Þeim fannst þetta mjög gaman, þau hafa verið hjá mér í einhverju auglýsingatengdu. Þau eru ekkert óvön myndavélinni þannig að þau kipptu sér rosalega lítið upp við þetta.“

Auglýsinguna segir hann skemmtilega viðbót í myndaalbúm fjölskyldunnar. „Það sem mér fannst svolítið spennandi í þessu var hvað við sem fjölskylda erum að eignast góða minningu. það verður gaman að eiga þetta þegar við verðum eldri og hlæja að þessu saman.“

Tökuliðið var með fjölskyldunni nánast allan sólarhringinn í fjóra daga. „Það var bara rétt svo að vekjaraklukkan hafi náð að hringja þegar dyrabjallan glumdi,“ segir Gunnar léttur í bragði og tekur fram að lítið hafi farið fyrir tökuliðinu sem sneið handritið í kringum dagskrá og tómstundir fjölskyldunnar.

Í auglýsingunni sjást börnin í ballett, við píanóæfingar og í básúnutíma. Gunnar segir auglýsinguna gefa raunsæja mynd af daglegu lífi fjölskyldunnar en bætir við að oft sé meiri ys og þys. „Þetta eru oft ansi mikil hlaup, maður er alltaf að fara á svo marga staði.“ Auglýsingin var tekin upp af True North í samstarfi við auglýsingastofuna ENNEMM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×