Lífið

Allt það besta með Ladda

Laddi hefur skapað fjöldann allan af eftirminnilegum persónum í gegnum tíðina.
Laddi hefur skapað fjöldann allan af eftirminnilegum persónum í gegnum tíðina. Vísir/GVA
Sýningin Allt það besta með Þórhalli „Ladda“ Sigurðssyni verður haldin í Bæjarbíói í Hafnarfirði annað kvöld. Laddi er einn ástsælasti grínari, leikari, söngvari, tónskáld og skemmtikraftur þjóðarinnar.

Á næstum hálfri öld hefur hann gefið út plötur, leikið í kvikmyndum, áramótaskaupum og skemmtiþáttum og stytt okkur stundir með uppátækjum sínum í leikhúsum, bíóum og sjónvarpi.

Hann hefur skapað fjöldann allan af eftirminnilegum persónum, sem lifa sjálfstæðu lífi. Saxi læknir, Eiríkur Fjalar, Mói gamli, Elsa Lund, Hallgrímur Ormur, Magnús bóndi, Dengsi, Þórður húsvörður, Skúli rafvirki, Leifur óheppni, Stefán frá Útistöðum og Marteinn Mosdal fylgja Ladda hvert sem hann fer.

Þessir skrautlegu karakterar ætlar að leggja undir sig Bæjarbíó. Sýningin fleytir rjómann af tveimur vinsælustu sýningum Ladda, Laddi 6-tugur og Laddi lengir lífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×