Lífið

ABBA snýr aldrei aftur

Abba Björn Ulvaeus þvertekur fyrir endurkomu ABBA.NOrdicphotos/Getty
Abba Björn Ulvaeus þvertekur fyrir endurkomu ABBA.NOrdicphotos/Getty
Björn Ulvaeus, einn af fyrrverandi meðlimum sænsku poppsveitarinnar ABBA, hefur sjálfsagt valdið aðdáendum sveitarinnar vonbrigðum með því að útiloka það að ABBA muni nokkurn tímann koma saman aftur. Ulvaeus segir meðlimi sveitarinnar enga ástæðu hafa til þess að endurvekja ABBA. Ekkert þeirra eigi í peningavandræðum, en slík vandræði séu yfirleitt kveikjan að því að fornfrægar hljómsveitir komi saman á nýjan leik. Ummælin lét Ulvaeus falla í kjölfar útgáfu ljósmyndabókarinnar ABBA: The Official Photo Book, en í bókinni má finna yfir sex hundruð ljósmyndir auk þess sem farið er yfir feril sænsku poppsveitarinnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×