Lífið

Konur eru okkar eina von

Benedikt Freyr Jónsson
Benedikt Freyr Jónsson
1. Þegar ég var ungur var ég mjög uppátækjasamur og vildi verða Dj.

2. En núna er ég mjög uppátækjasamur Dj/tónlistarmaður sem andar dýpra en þá.

3. Ég mun eflaust aldrei skilja fólk sem biður um óskalög.

4. Ég hef ekki sérstakan áhuga á leiðindum.

5. Konur eru okkar eina von.

6. Ég hef lært að maður á alls ekki að velta sér upp úr hlutunum.

7. Ég fæ samviskubit þegar ég er ekki nóg með fjölskyldunni.

8. Ég slekk á sjónvarpinu þegar ég fæ ekkert út úr því.

9. Um þessar mundir er ég mjög upptekinn af fjölskyldunni, fyrirtækinu og tónlistinni.

10. Ég vildi óska þess að fleiri vissu af því hversu gott er að stunda jóga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×