Lífið

Rifjar upp gamla takta

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Lárus Halldór Grímsson fagnar sextugsafmælinu með samstarfsfólki og fjölskyldu í dag.
Lárus Halldór Grímsson fagnar sextugsafmælinu með samstarfsfólki og fjölskyldu í dag. vísir/stefán
Lárus Halldór Grímsson, tónskáld og skólastjóri Skólahljómsveitar vestur- og miðbæjar, fagnar stórafmæli í dag en hann er fæddur 13. desember árið 1954 og er því sextugur í dag.

Lárus Halldór fagnar afmælinu með vinum og samstarfsfólki sem hann býður til veislu í kvöld. „Það verður partí, þetta verður svona aðallega með núverandi og fyrrverandi samstarfsfólki og fjölskyldu.“ En hann tekur afmælinu fagnandi enda ekkert annað í stöðunni að hans sögn.

Allur gangur er á því hvort Lárus Halldór heldur upp á afmælið en þegar stórafmæli er í vændum er tilefni til þess að fagna.

„Þetta verður nú svona stærra í sniðum núna. Það verða þarna margar hljómsveitir sem ég hef verið að spila með í gegnum tíðina. Við ætlum að rifja upp gamla takta félagarnir,“ segir Lárus Halldór, sem var í óðaönn við undirbúning afmælisins.

Lárus Halldór hefur í gegnum tíðina spilað með fjölmörgum hljómsveitum. Sem dæmi má nefna hljómsveitina Þokkabót sem vakti mikla athygli fyrir þýðingu á laginu Litlir kassar eftir Peter Seeger. Lagið er á fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Upphafið sem kom út árið 1974. Auk þess var Lárus Halldór meðlimur í Eik, Þursaflokknum og MX-21 ásamt Bubba Morthens.

Lárus Halldór hefur komið víða við á tónlistarsviðinu en auk þeirra hljómsveita sem hann hefur leikið með hefur hann samið mikið efni fyrir sjónvarp, kvikmyndir og leikhús.

Fyrstu skrefin í tónlistinni tók hann í skólahljómsveitinni sem hann stjórnar nú sjálfur en þar hóf hann nám á þverflautu tíu ára gamall. Árið 1971 hóf Lárus Halldór áframhaldandi tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðar lá leið hans til Hollands í skólann Institut voor sonologi í Utrecht og lauk námi þaðan árið 1984 en hélt áfram störfum við stofnunina að námi loknu.

Lárus Halldór er, líkt og áður sagði, skólastjóri við Skólahljómsveit vestur- og miðbæjar og tók við starfi skólastjóra árið 1994 auk þess sem hann kennir á þverflautu, klarínett og saxófón. „Ég var í þessari skólahljómsveit sjálfur og tók við henni af Páli Pampichler Pálssyni,“ segir Lárus Halldór og bætir við að honum finnist gaman að starfa með unga fólkinu í hljómsveitinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×