Lífið

Beyoncé á vinsælasta stjörnuilmvatnið

Söngkonan vinsæla hefur slegið í gegn með ilmvatninu sínu Rise.
Söngkonan vinsæla hefur slegið í gegn með ilmvatninu sínu Rise.
Allt stefnir í að ilmvatn söngkonunnar Beyoncé, Rise, verði vinsælasta stjörnuilmvatnið í Bretlandi á þessu ári. Búist er við að það seljist yfir 750 þúsund flöskur þar í landi árið 2014. Talið er að hún þéni tæpar 300 milljónir króna á þeirri sölu.

Næstvinsælasta ilmvatnið er That Moment frá strákabandinu One Direction en talið er að um 450 þúsund flöskur seljist af því. Ilmvötn frá Cheryl Fernandez-Versini, Nicki Minaj og Katy Perry komust einnig á topp-tíu listann, ásamt ilmvötnum frá Rihönnu, Victoriu Beckham, Taylor Swift og Lady Gaga.

„Þetta hefur verið gott ár fyrir ilmvötn stjarnanna. Þetta snýst allt um poppstjörnur,“ sagði Rakesh Aggarwal, ilmvatnssérfræðingur hjá Escentual.com.

„Þessi góða sala þýðir að ilmvötnin þeirra eru álíka vinsæl og ilmvötnin frá stóru spilurunum á markaðnum, hönnuðunum. Beyoncé er í níunda sæti yfir mestu söluna yfir allt og það er stórmerkilegt,“ sagði hún.

„Flestar stjörnurnar fá í kringum 400 krónur af hverju seldu ilmvatnsglasi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×